Þátttaka á NM frábært veganesti

Landsliðsnefnd LH hefur ákveðið að framlengja umsóknafresti um þátttöku á NM2012 til og með 29.maí. Norðurlandmótið í hestaíþróttum verður haldið dagana 2. -5. ágúst í Eskilstuna í Svíþjóð.


Landsliðsnefnd LH hefur ákveðið að framlengja umsóknafresti um þátttöku á NM2012 til og með 29.maí.

Norðurlandmótið í hestaíþróttum verður haldið dagana 2. -5. ágúst í Eskilstuna í Svíþjóð. Í Eskilstuna eru aðstæður góðar og keppnisvæðið mjög skemmtilegt.

Þeir sem hafa áhuga á að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu eru vinsamlegast beðnir um að senda inn umsókn. Í umsókninni þarf að koma fram: Nafn, heimilisfang, sími, aldur og netfang. Einnig þarf að koma fram keppnisreynsla og telja þarf upp helstu afrek á keppnisvellinum.

Við hvetjum sem flesta til að sækja um en reynsla af þátttöku á Norðurlandamóti er frábært veganesti fyrir alla hestaíþróttamenn og konur.

Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum hestaíþrótta í tveimur aldursflokkum:
•    15 - 21 árs (21 árs á árinu) - Unglingar og ungmenni, alls 8.
•    22 ára og eldri – Fullorðnir, alls 10.

Knapar útvega sér hross fyrir mótið sjálfir, í samráði við liðstjóra, en hægt er að aðstoða ungmenni ef þess gerist þörf.

Umsóknum þarf að skila inn til Landssambands hestamannafélaga í síðasta lagi 21.maí.

Bréflega: Landssamband hestamannafélaga, Engjavegur 6, 104 Reykjavík.
Tölvupóstur: lh@isi.is
Fax: 514 4031.

Allar upplýsingar um mótið er hægt að fá á skrifstofu LH í síma 514 4030 eða hafa samband við Hafliða Halldórsson liðsstjóra í síma 896 3636.

Landsliðsnefnd LH