Skrúðreið um miðbæinn

Nú er glæsilegri skrúðreið um miðbæ Reykjavíkur lokið. Skrúðreiðin fór vel fram og vakti að venju mikla athygli.

Nú er glæsilegri skrúðreið um miðbæ Reykjavíkur lokið. Skrúðreiðin fór vel fram og vakti að venju mikla athygli. Fyrir skrúðreiðinni fór flottur hópur lögregluþjóna og slökkviliðsmanna á hestum og vakti það mikla lukku. Þá var einnig trompetleikari með í för sem gaf tóninn fyrir knapana og reiðskjóta þeirra. Fleiri myndir úr skrúðreiðinni verða birtar á næstu dögum.

Dagskrá Hestadaga heldur áfram og næst er það ístöltið sem fram fer í Laugardalnum í kvöld. Mótið hefst kl 20:00 en húsið opnar kl 19:00.