Sara Dís og Kristín Eir Íslandsmeistarar í samanlögðum greinum

Samanlagður sigurvegari í unglingaflokki á Íslandsmóti barna og unglinga 2022 var Sara Dís Snorradóttir en hún átti frábæran árangur á mótinu og var í úrslitum í öllum hringvallagreinum ásamt því að vera ofarlega í fimi og skeiðgreinum.
 
Samanlagður sigurvegari í barnaflokki var Kristín Eir Hauksdóttir Holaker en hún varð Íslandsmeistari í fjórgangi og fimi A og ofarlega í öðrum greinum