Opið fyrir skráningu á opna Íþróttamót Gusts

Opnað hefur verið fyrir skráningu á opið íþróttamót Gusts sem fram fer í Glaðheimum 12.-13. maí nk. Eingöngu er skráð á vef Gusts, www.gustarar.is undir liðnum skráning og þarf að ganga frá greiðslu á skráningargjöldum með greiðslukorti samhliða skráningu.

Skráning er opin til miðnættis 7. maí nk.

Keppnisgreinar verða eftirfarandi:

Börn : Tölt, fjórgangur

Unglingar: Tölt, fjórgangur

Ungmenni: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið

Fullorðnir 2. flokkur: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, slaktaumatölt og flugskeið.

Fullorðnir opinn flokkur: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, slaktaumatölt og flugskeið.

Skráningagjöld eru:

Börn og unglingar,ungmenni: 2500 kr. hver skráning.

Aðrir: 3500 kr. hver skráning.

Pollar eru frítt og verður skráning á staðnum fyrir þá