Ódýr hesthúspláss í Heimsenda

Ekki er öll von úti að hestamenn geti fengið hesthúspláss á kristilegu verði. Helena Ómarsdóttir auglýsir pláss til leigu í Heimsendahverfi á 21 þúsund krónur með heyi, spæni og hirðingu.Ekki er öll von úti að hestamenn geti fengið hesthúspláss á kristilegu verði. Helena Ómarsdóttir auglýsir pláss til leigu í Heimsendahverfi á 21 þúsund krónur með heyi, spæni og hirðingu.Ekki er öll von úti að hestamenn geti fengið hesthúspláss á kristilegu verði. Helena Ómarsdóttir auglýsir pláss til leigu í Heimsendahverfi á 21 þúsund krónur með heyi, spæni og hirðingu.

„Þetta er í efsta og austasta húsinu í Heimsendahverfinu. Þar ætla ég að leigja út sextán pláss, með heyi, spæni og hirðingu. Það vita allir hvernig ástandið í þjóðfélaginu er. Það er eðlilegt að fólk hugsi sig vel um; í hvað það notar peningana! Það er vissulega orðið dýrt að reka svona hús, en við viljum frekar fylla húsið og vera viss um að fólk hafi hreinlega efni á að borga heldur en halda verðinu í toppi,“ segir Helenda.
Ennþá eru nokkur pláss laus í húsinu. Sjá má auglýsingu frá Helenu á: www.andvari.is

Myndin er ekki úr viðkomandi hesthúsi.