Nýtt nafn sameinaðs félags í Skagafirði

Ákveðið hefur verið að stofna nýtt hestamannafélag í Skagafirði  við sameiningu þriggja félaga.  Ákveðið er að nýtt félag beri nafnið Skagfirðingur.  Hið nýja nafn var valið eftir að nafnakosning var endurtekin og í þeirri kosningu var nafnið Skagfirðingur valið. Miklar vonir eru bundnar við hið nýja félag.

 

Stjórnir hestamannafélaganna í Skagafirði

Jónína Stefánsdóttir

Úlfar Sveinsson

Guðjón Björgvinsson