Nýr formaður Landssambands hestamannafélaga

Guðni Halldórsson nýkjörinn formaður LH og Lárus Ástmar Hannesson fráfarandi formaður
Guðni Halldórsson nýkjörinn formaður LH og Lárus Ástmar Hannesson fráfarandi formaður

62. Landsþing Landssambands hestamannafélaga 2020 var haldið um helgina 27.-28. nóvember með rafrænum hætti.

Meðal samþykkta þingsins er áframhaldandi samstarf LH við Horses of Iceland-verkefnið, stöðulisti inn á Íslandsmót fullorðinna og ungmenna, tilmæli um að reglur um gæðingafimi LH verði notaðar til reynslu fram að næsta landsþingi, reglur um gæðingatölt, lágmarksstærð keppnisvallar innahúss, að LH hefji stefnumótun um nýliðun, áskorun til BÍ og FEIF um að endurskoða verklag við skráningu á nöfnum í WorldFeng, áskorun til Vegagerðarinnar og Samtaka sveitarfélaga að standa vörð um reiðleiðir, stuðningur LH við faghóp sem vinnur að gerð auglýsinga um umferðaröryggismál hestamanna og fleira. 

Æskulýðsbikar LH hlaut Hestamannafélagið Hornfirðingur en félagið hefur rekið öflugt nýliðunar- og æskulýðsstarf.

Guðni Halldórsson var kjörinn formaður LH, fráfarandi formaður Lárus Ástmar Hannesson gaf ekki kost á sér áfram en hann hefur gengt embætti formanns síðan 2014. 

Kosningu í aðalstjórn hlutu Stefán Logi Haraldsson, Gréta V. Guðmundsdóttir, Sóley Margeirsdóttir, Siguroddur Pétursson, Eggert Hjartarson og Hákon Hákonarson og í varastjórn voru kjörnir Einar Gíslason, Aníta Aradóttir, Ómar Ingi Ómarsson, Ingimar Baldvinsson og Lilja Björk Reynisdóttir.

 

 

 

  • Guðni Halldórsson nýr formaður LH og Sóley Margeirsdóttir fráfarandi varaformaður LH
  • Ómar Ingi Ómarsson tók á móti æskulýðsbikar LH f.h. Hestamannafélagsins Hornfirðings
  • Lárus Ástmari Hannessyni með málverk eftir Sigríði Ævarsdóttur