Ný stjórn og nýr formaður Landssambands hestamannafélaga

62. Landsþing Landssambands hestamannafélaga 2020 var haldið helgina 27.-28. nóvember með rafrænum hætti. 

Meðal samþykkta þingsins er áframhaldandi samstarf LH við Horses of Iceland-verkefnið, stöðulisti inn á Íslandsmót fullorðinna og ungmenna, tilmæli um að reglur um gæðingafimi LH verði notaðar til reynslu fram að næsta landsþingi, reglur um gæðingatölt, lágmarksstærð keppnisvallar innahúss, að LH hefji stefnumótun um nýliðun, áskorun til BÍ og FEIF um að endurskoða verklag við skráningu á nöfnum í WorldFeng, áskorun til Vegagerðarinnar og Samtaka sveitarfélaga að standa vörð um reiðleiðir, stuðningur LH við faghóp sem vinnur að gerð auglýsinga um umferðaröryggismál hestamanna og fleira. 

Æskulýðsbikar LH hlaut Hestamannafélagið Hornfirðingur en félagið hefur rekið öflugt nýliðunar- og æskulýðsstarf.

Guðni Halldórsson var kjörinn formaður LH, fráfarandi formaður Lárus Ástmar Hannesson gaf ekki kost á sér áfram en hann hefur gengt embætti formanns síðan 2014.

Á landsþingi LH 2020 var kjörin ný stjór til næstu tveggja ára.

Stjórn LH 2020-2022 skipa:

Aðalstjórn:
Guðni Halldórsson formaður
Stefán Logi Haraldsson varaformaður
Gréta V. Guðmundsdóttir ritari
Hákon Hákonarson gjaldkeri
Sóley Margeirsdóttir
Siguroddur Pétursson
Eggert Hjartarson

Varastjórn:
1. varamaður: Einar Gíslason
2. varamaður: Aníta Aradóttir
3. varamaður: Ómar Ingi Ómarsson
4. varamaður: Ingimar Baldvinsson
5. varamaður: Lilja Björk Reynisdóttir