Ljósmyndasamkeppni Feif, IPZV og ÖIV 2022

Mynd: Gígja Einarsdóttir
Mynd: Gígja Einarsdóttir

FEIF, IPZV (þýska íslandshestasambandið) og ÖIV (austurríska íslandshestasambandið) halda á hverju ári 4 ljósmyndasamkeppnir tileinkaðar hverri árstíð. Fjórða og síðasta þemað í ár er "Oldies but goldies" eða "Gamlir og góðir". 

Myndirnar verður að senda í landscape og í góðum gæðum. Leyfilegt er að senda inn allt að 3 myndir. 

Mikilvægt er að hafa í huga: 

  • Myndirnar verða að innihalda íslenska hestinn
  • Myndin verður að vera tekin af þér eða fjölskyldu eða vinum. Myndir frá atvinnuljósmyndurum eru ekki samþykktar.
  • Skylda er að vera með hjálm ef knapi er á baki á myndinni.
  • Vinsamlegast setjið inn heimilisfang svo hægt sé að senda sigurvegara keppninnar vinninginn.

Alþjóðleg dómnefnd velur 10 bestu myndirnar og 3 bestu myndirnar verða síðan valdar til kosningar á netinu. 3 bestu myndirnar verða svo í dagatali FEIF á næsta ári. 

Með því að senda inn mynd ertu að samþykkja að FEIF, IPZV og ÖIV noti þær áfram.

Veglegir vinningar í boði.

Sendið myndirnar á photo@feif.org

Síðasti skiladagur er 1. nóvember 2022.