Kristín Eir Hauksdóttir Holaker er Íslandsmeistari í fjórgangi barnaflokki

Kristín Eir Hauksdóttir Holaker og Þytur frá Skáney eru Íslandsmeistarar í fórgangi V2 í barnaflokki á Íslandsmóti barna og unglinga 2022. Kristín og Þytur hlutu 6,77 í einkunn í úrslitum.
 
Brimhestar styrktu þessa grein á mótinu og Lífland gaf gjafabréf til sigurvegara. Farandbikar LH var gefinn af Hestamannafélaginu Spretti.
 
Verðlaunasæti:
1 Kristín Eir Hauksdóttir Holaker / Þytur frá Skáney 6,77
2 Hjördís Halla Þórarinsdóttir / Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi 6,57
3 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir / Laufi frá Syðri-Völlum 6,30
4 Elísabet Líf Sigvaldadóttir / Elsa frá Skógskoti 6,27
5 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir / Bragabót frá Bakkakoti 6,07
6 Þórhildur Helgadóttir / Kóngur frá Korpu 5,70
 
Til hamingju Kristín!