Knapar ársins 2014 á Uppskeruhátíð hestamanna

Nefnd um knapaval og viðurkenningar LH á Uppskeruhátíð hestamanna hefur nú skilað af sér tilnefningum um Knapa ársins og Ræktunarbú keppnishrossa 2014.

Fimm knapar eru tilnefndir í hverjum flokki en flokkarnir eru: íþróttaknapi, skeiðknapi, gæðingaknapi, kynbótaknapi, efnilegasti knapinn og knapi ársins.  Við valið er litið til árangurs knapa á árinu, hér heima sem erlendis. Knapi ársins í hverjum flokki er valinn sá sem talinn er hafa náð framúrskarandi árangri og frammistaða hans sé álitin reiðmennskunni til framdráttar. Í flokkinum Ræktunarbú keppnishrossa eru tilnefnd þau ræktunarbú sem hafa skilað flestum hrossum í keppni eða sýnt árangur sem eftir er tekið.

 

Allir tilnefndir verða heiðraðir á Uppskeruhátíð hestamanna í Gullhömrum, Grafarholti þann 10. janúar næstkomandi og þá kemur einnig fram hver hampar titlinum í hverjum flokki fyrir sig.

Tilnefningar eru eftirfarandi:

 

Kynbótaknapar:

-         Agnar Þór Magnússon  

-         Árni Björn Pálsson

-         Daniel Jónsson

-         Jakob Svavar Sigurðsson

-         Olil Amble

 

Skeiðknapar: 

-         Bjarni Bjarnason

-         Daniel Ingi Smárason

-         Sigurbjörn Bárðarson

-         Teitur Árnason

-         Vigdís Matthíasdóttir

 

Íþróttaknapar:

-         Árni Björn Pálsson

-         Eyjólfur þorsteins

-         Haukur Baldvinsson  

-         Jóhann Rúnar Skúlason

-         Reynir Örn Pálmason

 

Gæðingaknapar:

-         Gísli Gíslason

-         Sigurður Óli Kristinsson

-         Sigurður Sigurðsson

-         Steingrímur Sigurðsson

-         Þórarinn Ragnarsson

 

Efnilegasti knapinn:

-         Guðmunda Ellen Sigurðardóttir

-         Gústaf Ásgeir Hinriksson

-         Jóhanna Margrét Snorradóttir

-         María Gyða Pétursdóttir

-         Róbert Bergmann

 

Knapi ársins:

-         Árni Björn Pálsson

-         Daniel Jónsson

-         Reynir Örn Pálmason

-         Sigurður Sigurðarson

-         Þórarinn Ragnarsson


Ræktun Keppnishrossa LH 2014

-         Fet

-         Flugumýri

-         Skriða

-         Syðri Gegnishólar/Ketilsstaðir

-         Þóroddsstaðir