Jón Ársæll Bergmann Íslandsmeistari í flugskeiði

Jón Ársæll Bergmann og Rikki frá Stóru-Gröf ytri sigruðu í 100m flugskeiði í unglingaflokki á Íslandsmóti barna og unglinga 2022. Þeir fóru sigursprettinn á frábærum tíma, 7,83 sek. 
 
Leiknir hestakerrur styrktu þessa grein á mótinu og Kaupfélag Borgfirðinga gaf gjafabréf til sigurvegara. Farandbikar LH fyrir gæðingaskeið var gefinn af Hestamannafélaginu Herði.
 
Verðlaunasæti:
1 Jón Ársæll Bergmann Rikki frá Stóru-Gröf ytri 7,83
2 Þórgunnur Þórarinsdóttir Gullbrá frá Lóni 8,10
3 Herdís Björg Jóhannsdóttir Þórvör frá Lækjarbotnum 8,25
4 Sara Dís Snorradóttir Djarfur frá Litla-Hofi 8,65
5 Kristín Eir Hauksdóttir Holaker Bragi frá Skáney 8,88