Íslandsmót yngri flokka - hægt að skrá í dag

Kristján Árni Birgisson og Sjens á FM2015/Jón Bj.
Kristján Árni Birgisson og Sjens á FM2015/Jón Bj.

Ákveðið hefur verið að hafa opið fyrir skráningar á Íslandsmót yngri flokka í Borgarnesi fram til miðnættis 6. Júlí. Hér stefnir allt í gott mót – skráningar eru að nálgast 300 sem er nokkuð í takt við væntingar.

Hesthúspantanir þarf að senda á netfangið marteinn@loftorka.is og þar þarf að koma fram fjöldi hrossa.

Ef þarf aðstoð við skráningu (eitthvað misferst eða gengur ekki upp) þá má senda póst á kristgis@simnet.is með nauðsynlegum upplýsingum.

Svanhildur Svansdóttir framkvæmdastjóri veitir svo nánari upplýsingar, ef þarf, í síma 899-2170 eða  netfangið svany@postbox.is 

Með kveðju,
Kristján Gíslason