Íslandsmót barna- og unglinga 2023

Sigrún Helga Halldórsdóttir og Gefjun frá Bjargshóli
Sigrún Helga Halldórsdóttir og Gefjun frá Bjargshóli

Íslandsmót barna- og unglinga 2023 verður haldið á Rangárbökkum félagssvæði Geysis dagana 12.-16. júlí.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

Barnaflokkur: gæðingalist 1. stig, tölt T3, tölt T4 og fjórgangi V2.

Unglingaflokkur: gæðingalist 2. stig, tölt T1, tölt T4, fjórgangur V1, fimmangur F2, gæðingaskeiði PP1 og 100 m. flugskeið P2.

Jafnframt verður nú boðið uppá gæðingakeppni og gæðingatölt í báðum aldursflokkum.

Opið verður fyrir skráningu á mótið inná www.sportfengur.com,  fram til miðnættis 7. júlí.