Ískaldar töltdívur

 

Nú eru tæpar 3 vikur í fyrsta viðburð Landsliðsnefndar til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum.

Ískaldar töltdívur munu safnast saman í Samskipahöllinni laugardaginn 20. febrúar næstkomandi. Í ár verða keppnisgreinarnar eftirfarandi: T1 (Opin flokkur), T3 (Meira vanar), T7 (Minna vanar) og T3 (Ungmennaflokkur (18-21 árs)). Ungmenni geta skráð sig í aðra flokka eftir því hvað þeir treysta sér í.

Keppnin hefst með forkeppni, að henni lokinni verður skemmtiatriði í hléi og svo taka úrslitin við.

Skráningar verða dagana 8.-12. febrúar næstkomandi í gegnum skráningakerfi Sportfengs, skráningarfjöldi verður takmarkaður svo fyrstir koma fyrstir fá. 
Skráningargjöld kr. 6000.

Vonumst til að sjá sem flesta laugardaginn 20. Febrúar.

Frítt inn!