Hjördís Halla Þórarinsdóttir Íslandsmeistari í tölti barnaflokki

Hjördís Halla Þórarinsdóttir og Flipi frá Bergsstöðum eru Íslandsmeistarar í Tölti T3 í barnaflokki á Íslandsmóti barna og unglinga 2022. Hjördís Halla og Flipi hlutu 6,78 í a-úrslitum.
 
Trausti Fasteignasala styrkti þessa grein á mótinu og Lífland gaf gjafabréf til sigurvegara. Farandbikar LH var gefinn af Hestamannafélaginu Sörla.
 
Verðlaunasæti:
1. Hjördís Halla Þórarinsdóttir / Flipi frá Bergsstöðum 6,78
2. Kristín Eir Hauksdóttir / Þytur frá Skáney 6,28
3. Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir / Laufi frá Syðri-Völlum 6,22
4. Eyvör Vaka Guðmundsdóttir / Díva frá Bakkakoti 6,22
5. Apríl Björk Þórisdóttir/ Sikill frá Árbæjarhjáleigu 6,11
6. Þórhildur Helgadóttir / Kóngur frá Korpu 6,11