Hilda Karen komin til starfa

Hilda Karen Garðarsdóttir verkefnastjóri hjá LH er komin aftur til starfa eftir fæðingarorlof. Hún mun detta inn í fyrri rútínu hjá LH, starfa að fjölbreyttum verkefnum/viðburðum sambandsins sem og að starfa með nefndum sambandsins að þeirra verkefnum og þjónusta hestamannafélögin þegar þess er óskað.

Starfsmenn sambandsins eru því tveir í fullu starfi, þær Jóhanna Gunnarsdóttir og Hilda Karen.

Hilda Karen
hilda@lhhestar.is

Jóhanna
johanna@landsmot.is