Hestaþing og úrtaka Mána og Brimfaxa

Sameiginlegt Hestaþing og úrtaka Mána og Brimfaxa fer fram helgina 2.-3.júní nk á Mánagrund. Á laugardeginum 2.júní verða kappreiðar kl.17 og verður skráning á staðnum, engin keppnisgjöld. Strax á eftir kappreiðum verður grillveisla í Mánahöllinni þar sem við ætlum að hafa gaman saman. Verð í grill er 1500 kr og 500 kr fyrir börn undir 13 ára.

Sameiginlegt Hestaþing og úrtaka Mána og Brimfaxa fer fram helgina 2.-3.júní nk á Mánagrund.

Á laugardeginum 2.júní verða kappreiðar kl.17 og verður skráning á staðnum, engin keppnisgjöld. Strax á eftir kappreiðum verður grillveisla í Mánahöllinni þar sem við ætlum að hafa gaman saman.  Verð í grill er 1500 kr og 500 kr fyrir börn undir 13 ára.

Á sunnudeginum 3.júní verður hestaþingið/úrtakan og keppt verður í eftirtöldum flokkum:

  • Pollar teyminga
  • Pollar
  • Tamningaflokki  (5 vetra og yngri)
  • Barnaflokki
  • Unglingaflokki
  • Ungmennaflokki
  • A-flokki
  • B-flokki
  • A-flokki áhugamanna ( tölt, brokk, skeið – riðið eftir þul, 3 inná í einu )
  • B-flokki áhugamanna (tölt, brokk, yfirferð - riðið eftir þul, 3 inná í einu)

Skráningagjöld eru 4500 kr á grein (boðið verður uppá 2 umferðir fyrir þá sem eru að keppa til að komast á LM en þá verða þeir að skrá sig í fótaskoðun um leið og þeirra flokkur er búinn og greiða skráningagjöld fyrir það sérstaklega 4500 kr). Fyrri umferð gildir inn í úrslitin.

Pollar greiða 1500

Tamningaflokkur, A-áhugamanna og B-áhugamanna greiða 3000kr.

Lágmarks þáttaka í áhugamannaflokkana er 5 knapar.

ATH!! Hestar í úrtöku verða að vera í eigu skuldlausra félagsmanna þess félags sem þeir ætla að  keppa fyrir.

Skráning fer fram á http://www.skraning.is/vidburdir/mani/ .  Þar er einnig hægt að skrá sig í grillveisluna.

Ef keppendur eiga í vandræðum með að skrá sig á síðunni er hægt að senda póst á mani@mani.is . Þar þurfa þá að koma fram upplýsingar um knapa, símanúmer, IS númer hests og grein/ar ásamt kreditkortanúmeri.  Hægt að hringja í Þóru s.893-0304 ef þarf einhverja aðstoð við skráningu.

Skráningu lýkur á miðnætti mánudaginn 28.maí.

Mótanefnd Mána og Brimfaxa