Heimsmeistarar í fimmgangi ungmenna

Glódís og Salka
Glódís og Salka

Dagurinn í dag hófst á B úrslitum í tölti en þar áttu við enga fulltrúa. Þau sem unnu B úrslitin voru þau: Kristján Magnússon sem keppir fyrir Svíþjóð á hestinum Óskar från Lindeberg, hlutu þeir  í einkunn 7.61 og mæta því til A úrslita á morgun. Í T2 voru það Helen Klaas og Kolgrímur vom Neddernhof sem unnu B úrslitin með 7.38 í einkunn. Amanda Frandsen frá Danmörku Tinna frá Litlalandi sigruðu svo B úrslit ungmenna í T1 með einkunnina 6.72.

Næst á dagskrá var svo 100m skeið þar sem við áttum 6 fulltrúa. Það er skemmst frá því að segja að þau stóðu sig öll ofboðslega vel og áttu öll spretti á undir 8 sek. Heimsmeistaratitilinn í 100m skeiði fór til Helgu Hochstöger og Nóru von Oed frá Austurríki en þær áttu glæsilegan sprett upp á 7,27 sek. Næst á eftir og eftir að hafa leitt með besta tíma dagsins nánast alla keppnina voru Teitur og Drottning með tíman 7,29. Þar á eftir komu Elvar og Fjalladís í fjórða sæti á tímanum á 7,45 ásamt Hans Þór og Jarl sem einnig voru  á 7,45 sek. Daníel og Eining kláruðu svo á níunda besta tímanum 7,62 sek.

Í ungmennaflokki var það Alicia Palm og Ljúfa från Ekeholm sem urðu heimsmeistarar á 7,65 rétt eins og í fullorðinsflokk var það ekki fyrr en rétt í lokin sem hún skaust upp fyrir Sigríði og Ylfu en þær voru á tímanum 7,70 sek. Benedikt og Leira-Björk enduðu fimmtu í ungmennaflokk á tímanum 7,93. Góður árangur á skeiðbrautinni, þrátt fyrir að ekkert gull hafi komið þaðan í dag.

Í dag voru hæst dæmdu kynbótahryssurnar heiðraðar. Þar áttum við þrjá fulltrúa, þar á meðal hæst dæmda hrossið á mótinu Kötlu frá Hemlu ll, sýnandi Árni Björn með einkunnina 8,76. Auk þess voru þar kynntar Ársól frá Sauðanesi, sýnandi Aðalheiður Anna. Hún varð efst fimm vetra hryssna og þar með heimsmeistari með aðaleinkunnina 8,48 og Hrönn frá Fákshólum, sýnandi Jakob Svavar. Hrönn var efst sex vetra hryssna og þar með heimsmeistari með aðaleinkunnina 8,68.

Eftir því sem leið á daginn fór eftirvæntingin eftir B úrslitum í fimmgangi fullorðinna og A úrslitum í fimmgangi ungmenna að verða áþreifanlegri, stúkurnar voru orðnar smekkfullar löngu áður en úrslitin byrjuðu og stemningin var gífurleg. Við áttum tvo fulltúra í B úrslitum fullorðinna þá Þorgeir og Goðastein og Benjamín Sand og Júní. Þorgeir og Goðasteinn sem afskráðu sig úr slaktaumatölti til að einbeita sér betur að fimmganginum áttu frábæra sýningu og greinilegt að skipulagið gekk upp. Þeir enduðu stigahæstir með 7,38. Þeir munu því mæta aftur á morgun og keppa í A úrslitum ásamt Söru og Flóka. Benjamín og Júní áttu einnig góða sýningu og hlutu 7,05 í einkunn. Flottur árangur hjá þessu pari sem voru að mæta á sitt fyrsta alvöru mót saman.

Í A úrslitum í fimmgangi ungmenna áttu við einnig tvo fulltrúa þau Glódísi og Sölku og Benjamín og Leiru-Björk. Glódís kom af þvílíkum krafti og öryggi inn í úrslita keppnina og það var aldrei nein spurning um að hún ætlaði sér að vinna þennan titil og það mátti heyra stúkuna varpa öndinni samtaka og byrja að fanga um leið og hún klárið fyrri tvo skeiðsprettina með glæsibrag. Þær enduðu efstar með 7,21 í einkunn og þar með heimsmeistarar í fimmgangi ungmenna! Benjamín og Leira-Björk komu einnig beitt inn í fimmganginn og enduðu í 4 sæti með 6,10 sem gulltryggði þeim heimsmeistara titilinn í samanlögðum fimmgangsgreinum ungmenna! Það er því ekki hægt að segja annað en að dagurinn hafi verið heldur betur góður hér í sólinni og rakanum í Orischot.

Á morgun er svo lokadagurinn. Hann byrjar á A úrslitum í tölti T2 í fullorðins og ungmennaflokk. Þar eigum við engan fulltrúa. Næst er A úrslit í fjórgangi. Þar munu mæta Jóhanna Margrét og Bráður og Viðar og Þór frá Íslandi. Í ungmennaflokki eru okkar fulltrúar Jón Ársæll og Frár. Eftir hádegi er svo komið að A úrslitum í fimmgangi en þar munum við sjá Söru og Flóka og Þorgeir og Goðastein.

Svo áður en kemur að loka keppninni í tölti T1 verða hæstdæmdu stóðhestarnir heiðraðir og svo er komið að töltinu T1, í ungmennaflokk munum við sjá Herdísi Björgu og Kvarða og Jón Ársæl og Frá. Þar á eftir mæta svo til leiks Jóhanna Margrét og Bárður og Viðar og Þór. Það er spennandi loka dagur framundan og því ekki úr vegi að fara aðeins yfir stöðu mála en það gerðum við í skemmtilegu spjalli við Sigga Mar sem kom til okkar í settið og ræddi daginn sem er framundan, endilega kíkið á það: https://youtu.be/vyvig2p1-Zg