Fyrsta TREC mót Funa

Anna Rappich á leiðinni uppá pallinn.
Anna Rappich á leiðinni uppá pallinn.
Hestamannafélagið Funi hóf kennslu í TREC í vetur í Melaskjóli, inniaðstöðu Funa á Melgerðismelum. Námskeiðinu var skipt upp í TREC-1 og TREC-2 og um síðustu helgi var sett á keppni í þrautahluta TREC í tilefni þess að fyrrihluta námskeiðsins var lokið.

Hestamannafélagið Funi hóf kennslu í TREC í vetur í Melaskjóli, inniaðstöðu Funa á Melgerðismelum. Námskeiðinu var skipt upp í TREC-1 og TREC-2 og um síðustu helgi var sett á keppni í þrautahluta TREC í tilefni þess að fyrrihluta námskeiðsins var lokið.

Keppendur riðu braut sem samanstóð af 11 þrautum þar sem hæst var hægt að fá 10 stig fyrir hverja þraut en hindrunarstökk var aukaþraut sem gaf 5 bónusstig. Meðal þrauta var vegasalt sem riðið var yfir,  þrjár slár sem voru u.þ.b. 20 cm hærri en herðar hests og ríða átti undir á stökki og 50 cm stafli af vörubrettum sem ríða átti hestinum upp á og stíga þar af baki. Alls voru því 105 stig í pottinum en dregið niður fyrir hverja villu sem getið er í leiðara.

Ásdís Helga Sigursteinsdóttir hafði umsjón með námskeiði fyrir fullorðna og Anna Sonja Ágústsdóttir fyrir þá yngri og dæmdu þær flokkana eftir því. Fyrirfram var vitað að keppendur myndu skemmta sér vel enda hefur mikil gleði ríkt á námskeiðinu. Það sem kom skemmtilega á óvart var hversu áhorfendavæn keppnin var og spennandi að fylgjast með öllum keppendum enda auðvelt að sjá hvað var vel gert og fyrir hvað var refsað. Þegar mesta spennan var í loftinu mátti heyra saumnál detta.

Mikil ánægja er með þessa nýjung hjá þeim sem sóttu námskeiðið en einnig hafa kennararnir látið hafa eftir sér að þetta sé skemmtilegasta námskeið sem þær hafi komið að. Á þessu fyrsta námskeiði voru 18 þátttakendur sem mættu á tveggja vikna fresti í verklega tíma en einnig í þrjá bóklega tíma. Þótt létt sé yfir námskeiðinu þýðir það ekki að gleðin sé taumlaus. Þvert á móti reynir verulega á samspil manns og hests. Ábendingar þurfa að vera nákvæmar og fumlausar. Hesturinn hlustar eftir hverri ábendingu knapans og svarar þeim algjörlega mótþróalaust. Refsað er fyrir grófar ábendingar og umbunað fyrir fágaðan stíl. Helstu atriði í hlýðniæfingum, stökkskiptingar, hvatning, niðurhæging, stjórn gangtegunda og rétt áseta eru meðal þeirra atriða sem knapinn þarf að hafa vald á til að ná sem bestum árangri. Krafan um dýran „keppnishest“ víkur fyrir kröfunni um mjúkan, geðgóðan og vel taminn hest. Hér geta allir tekið þátt og árangri nær sá sem stundar sína hestamennsku af metnaði og natni án tillits til fjárhagslegrar stöðu. Hér er gott tækifæri til að höfða til breiðs hóps hestamanna, frá börnum og byrjendum upp í þrautreynt atvinnufólk. Sannkallað sóknarfæri til eflingar nýliðunnar. 

Á næstu vikum hefst námskeið í TREC-2 þar sem farið verður í fleiri þrautir og gangtegundahlutann. Við  mótun dagskrárinnar fyrir TREC-2 er gert ráð fyrir að nýir þátttakendur geti bæst í hópinn og að sjálfsögðu eru allir Eyfirðingar hvattir til að kynna sér málið. 

Funi stefnir að uppbyggingu TREC-brautar á Melgerðismelum enda óvíða eins góð aðstaða og þar. Á skógivöxnum melunum eru hólar og leiti, lækir, Eyjafjarðaráin, grösugir balar og víðfeðmir melar sem bjóða upp á óteljandi möguleika til að stunda TREC. 

Aðsend frétt frá hestamannafélaginu Funa í Eyjafjarðarsveit