Frábærir veislustjórar og stórskemmtileg skemmtiatriði!

Uppskeruhátíð hestamanna fer fram á morgun, laugardaginn 5.nóvember, í Gullhömrum og það stefnir allt í frábæra Uppskeruhátíð!
Veislustjórar verða þau Andrea Þorvaldsdóttir og Jón Kristófer Sigmarsson (Jonni á Hæli) og þau munu gera óspart grín að sjálfum sér og öðrum.
Gísli okkar Einarsson mun senda okkur myndskeið þar sem hann mun m.a. fara yfir hestaárið 2016. Hin unga og efnilega Guðbjörg Viðja Antonsdóttir mun svo koma fram og syngja nokkur vel valin lög. Heyrst hefur að formaðurinn okkar muni einnig bresta í söng.   

Enn er hægt að panta sér miða á Uppskeruhátíðina, allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Gullhamra - www.gullhamrar.is
Þeir sem hafa núþegar keypt sér miða geta sótt þá í dag, föstudag, milli kl.9-15.
Húsið mun svo opna á morgun, laugardag, kl.19:00.