Equsana deildin - lið 13-16

Seinustu liðin sem við kynnum til leiks í Equsana deildinni 2018 eru lið Vagna og Þjónustu, Ölvisholts, Stjörnublikks og Öðlinganna. 

Samtals keppa 16 lið í mótaröð ársins og þar má sjá mörg lið sem hafa verið með frá upphafi.  Reglur deildarinnar eru þannig að í lok mótaraðarinnar detta þrjú stiga lægstu liðin út og síðan eru dregin inn ný lið fyrir næstu mótaröð.  Í ár voru dregin út fjögur ný lið og sem kallast þá nýliðarnir í ár.  Þau lið eru Sindrastaðir og  Öðlingarnir sem koma glæný inn og síðan Snapps Kapp og Poulsen sem duttu út í fyrran en sóttu um aftur og voru dreginn út. 

Við erum byrjuð að telja niður og fyrsta mót hefst fimmtudaginn 8. febrúar kl. 19:00 með spennandi keppni í fjórgangi.

Ráslistar verða birtir á þriðjudaginn 6. febrúar.

stjornublikk

véla og þjónusta

öðlingarnir

ölvisholt