Brynja Björk ráðin rekstrarstjóri Sörla

Brynja Björk Garðarsdóttir rekstrarstjóri Sörla.
Brynja Björk Garðarsdóttir rekstrarstjóri Sörla.

Brynja Björk Garðarsdóttir hef­ur verið ráðin rekstrarstjóri Hesta­manna­fé­lags­ins Sörla frá og með 1.október. Hún er með B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá Há­skólanum í Reykjavík, MSc í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands. Brynja Björk hef­ur m.a starfað við fjármálastjórn, blaðamennsku, markaðsráðgjöf og almannatengsl. Brynja Björk hefur stundað hestamennsku til fjölda ára.

Hesta­manna­fé­lagið Sörli  var stofnað árið 1944 og er því sjötíu ára. Sörli  er með starf­semi sína í Hafnarfirði og eru tæplega 1000 félagsmenn.

Við bjóðum Brynju Björk velkomna til starfa.

Stjórn hestamannafélagsins Sörla