Áríðandi tilkynning frá LM: Knapafundur á Gaddstaðaflötum.

Mótstjórn boðar alla knapa sem þátt taka á Landsmóti á knapafund, nk. sunnudag, 29. júní, kl. 17:00.  Áríðandi er að allir knapar mæti, en á fundinum verður farið yfir helstu atriði er varða mótið, reglur og tilhögun.  Fundurinn verður haldinn í stóra veitingatjaldinu sem nú er þegar risið á Gaddstaðaflötum.  Þess má geta að ekki er ólíklegt að tækjakostur LM verði prufukeyrður um þetta leyti þannig að áhugamenn um fótbolta ættu að njóta góðs af því beint eftir að fundi lýkur.