Aðalfundur HÍDÍ og upprifjun 2016

Aðalfundur Hestaíþróttadómarafélags Íslands verður haldinn  mánudaginn 11 janúar kl 20:00 í Harðarbóli í Mosfellsbæ.  Bendum á að síðasti frestur til að leggja inn tillögur til lagabreytingar er 28 desember næstkomandi.  Vinsamlegast sendið þær inn á tölvupóstfangið  hididomarar@gmail.com.

Sjá dagskrá aðalfundar og reglur félagsins hér: http://www.hidi.is/uploads/5/0/6/7/5067893/lg_hestarttadmaraflags_slands_2013.pdf

Einnig er búið að ákveða að endurmenntun HÍDÍ  2016 verður haldin 14 janúar kl 17:00 í Harðarbóli í Mosfellsbæ og fyrir norðan 24 janúar kl 11:00 í Reiðhöllinni á Akureyri.  Eftir ábendingar frá síðasta haustfundi  var ákveðið að endurmenntun verður með breyttu sniði í ár.  Dagskráin verður styttri  og óskum við eftir að allir dómarar verði  búnir að dæma nokkra hesta heimafyrir áður en þeir mæta á staðinn.  Þetta verður skilyrði til að fá gilda endurmenntun en nánar um það síðar.

HÍDÍ óskar félagsmönnum og öðrum hestamönnum gleðilegra jóla og með von um gott samstarf á nýju keppnisári.

Stjórn og fræðslunefnd HÍDÍ