- Landinu skal skipt í sjö svæði og reiðveganefndir skipaðar á hverju þeirra
- Reiðveganefndirnar skulu skipaðar fulltrúa frá hverju hestamannafélagi innan hvers svæðis.
- Reiðveganefndirnar velja sér formann.
- Ferða- og samgöngunefnd LH skal skipuð formönnum reiðveganefnda hvers svæðis.
- LH skipar formann Ferða- og samgöngunefndar.
- Reiðveganefndirnar sækja um reiðvegafé ár hvert til LH.
- Reiðveganefndirnar vinna að framkvæmdaáætlun reiðvega fyrir sitt svæði til a.m.k. fjögurra ára í senn.
- Reiðveganefndirnar skulu skila inn framkvæmdaskýrslu ár hvert til skrifstofu LH um þegar unnin verk og gera grein fyrir úthlutuðu fjármagni til reiðvegagerðar innan síns svæðis.
- Reiðveganefndir sem trassa að skila inn framkvæmdaskýrslum, og greinargerð vegna reiðvegaframkvæmda eiga á hættu að vera ekki með við næstu úthlutun reiðvegafjár.
- Reiðveganefndirnar leitast við að efla tengsl við Vegagerðina, funda a.m.k. einu sinni á ári með forsvarsmönnum Vegagerðarinnar á viðkomandi svæðum.
- Reiðveganefndirnar kynna sér framkvæmdaáætlanir Vegagerðarinnar í sínu umdæmi og bregðast við þeim eftir því sem við á.
- Reiðveganefndirnar kynna Vegagerðinni sínar reiðvegaáætlanir.
- Reiðveganefndirnar skulu fylgjast vel með skipulagsmálum í sínu umdæmi og gera viðeigandi athugasemdir á vinnslustigi skipulags, er varðar reiðvegi, reiðleiðir eða áningarhólf.
- Hestamannafélög sem að kjósa að vera fyrir utan samstarfs reiðveganefndanna skulu ekki útilokuð frá að sækja um reiðvegafé á sitt starfssvæði.
Flýtilyklar
Starfslýsing
RSS fréttir
- sleipnir.is
Loksins 2. vetramót Sleipnis - sleipnir.is
Dagskrá 2010 - andvari.is
Bikarkeppnin næsta föstudagskvöld - andvari.is
Úrslit 2. vetrarleika Andvara 7 mars sl. - andvari.is
Knapamerki 1 nýtt námskleið að hefjast - 123.is
Ótitlað - sleipnir.is
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða - lettir.is
KEA mótaröðin fimmgangur - sleipnir.is
Sjálfboðavinna - Reiðhöll - hmfgeysir.is
Allt á fullu!!!
Á næstunni
13.03.2010
13.03.2010
14.03.2010
2.04.2010
9.04.2010














