Landssamband hestamannafélaga

Hér til vinstri má finna upplýsingar um Æskulýðsnefnd LH, hverjir eru æskulýðsfulltrúar innan hvers félags, ýmsan fróðleik s.s. handbók Æskulýðsnefndar

Æskulýðsmál

Hér til vinstri má finna upplýsingar um Æskulýðsnefnd LH, hverjir eru æskulýðsfulltrúar innan hvers félags, ýmsan fróðleik s.s. handbók Æskulýðsnefndar LH, upplýsingar um hvernig eigi að bera sig að við að kaupa hest auk ýmislegs fleira.

 

FEIF Youth Camp 2011 auglýsing:

FEIF Youth Camp verður haldð í Skotlandi árið 2011. Dagsetning: 23. – 30. júlí 2011. Verð: 530 - 550 €.
Hvert land hefur rétt til að senda 2 þátttakendur, en einnig verður biðlisti ef sæti losna, sem hefur verið undanfarin ár. Flugfargjald er ekki innifalið í þátttökugjaldinu.

Skilyrði: Þátttakendur verða að vera á aldrinum 13 – 17 ára, á árinu, verða hafa einhverja reynslu í hestamennsku og geti skilið og talað ensku.

Staðsetning: Búðirnar verða haldnar í Broomlee outdoor center í Skotlandi. 22,5  km. fyrir utan Edinborg. Nánari upplýsingar um staðinn er að finna á www.soec.org.uk/pages/broomlee.asp 

Dagskrá: Í grófum dráttum er dagskráin á þessa leið; farið verður á hestbak í skosku hálöndunum, sýnikennsla á hestum, heimsókn í Edenborgarkastala, draugaganga í gömlu Edinborg, útivera og hefðbundin skosk kvöldvaka.

Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu LH, Engjavegi 4, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík fyrir 06. mars 2011. Á umsókninni þarf að koma fram nafn, kennitala, heimili, í hvaða hestamannafélagi viðkomandi er og nokkrar línur um reynslu í hestamennsku.
 
Þegar búið verður að velja þá úr sem uppfylla skilyrðin verður dregið úr umsóknum.

Æskulýðsnefnd LH


Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
2m6d7732.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf