Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

Fréttir

Tilkynning frá Keppnisnefnd LH

Fyrir keppnistímabilið 2010 gilda eftirfarandi reglur um innanhússmót:


1.    Almennt gilda sömu reglur og utanhúss með eftirfarandi undantekningum.  Sérstaklega skal minnt á skil á Mótsskýrslu til að árangur skráist í Mótafeng og þar með inn í Worldfeng.
2.    Þegar riðið er inn á völl á innanhússmótum er leyfilegt að leyfa lengri leið áður en keppni hefst, eftir því sem aðstæður leyfa.
3.    Einkunnir úr innanhússmótum gilda ekki sem árangur til keppni utanhúss. Þær gilda því ekki sem lágmarkseinkunn til þátttöku í tölti á Landsmóti, ekki til þátttöku á Íslandsmóti né sem lágmarkseinkunn til þátttöku í meistaraflokki.

Reglugerð þessi fær númerið 8.3.2.1. í Lögum og reglum LH og taka gildi nú þegar.

Virðingarfyllst,
Keppnisnefnd LH


Styrktarađilar

Auglýsingar

Lög og reglur LH
UMSÓKNIR UM DÓMARA 2010
Lyfjareglur
2m6d2281.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf