Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

Fréttir

Meistaradeild frestað

Stjórn Meistaradeildar í hestaíþróttum hefur í samráði við liðseigendur og liðsstjóra tekið þá ákvörðun að fresta mótinu í kvöld vegna mikllar ófærðar og slæms veðurs.

Að höfðu samráði við Veðurstofu, Vegagerð og liðstjóra deildarinnar lítur illa út með veður og færð næstu 2 sólarhringa og því verður fyrsta mótinu frestað um eina viku. Samkvæmt veðurfræðingi er útlit fyrir milt og gott veður og góðri færð í næstu viku og þeir ráðlögðu okkur eindregið að fresta mótinu um þennan tíma.

Fyrsta mótið verður því haldið fimmtudaginn 2. febrúar klukkan 19:00.

Þeir sem hafa tryggt sér miða í forsölu á mótið í kvöld en hafa ekki tök á að mæta eftir viku geta snúið sér til söluaðila og fengið endurgreitt.


Kveðja,
Stjórn Meistaradeildar




Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
img_6208.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf