Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

Fréttir

Liðakeppni á Svellköldum

Boðið verður upp á skemmtilega nýbreytni á Ístöltsmóti kvenna "Svellköldum konum" í Skautahöllinni í Laugardal þann 13. mars nk. þ.e.að vera með liðakeppni. Keppendunum hundrað verður skipt í fimm lið, en dregið verður í liðin úr öllum keppnisflokkum og munu 20 knapar skipa hvert lið.

Árangur hvers og eins í liðinu telur svo inn í samanlagðan heildarárangur og í lok móts mun stigahæsta liðið koma fram og hljóta sérstök verðlaun.
Þessi nýjung ætti að geta skapað skemmtilega stemmingu þar sem knapar og aðstandendur geta hvatt sitt lið til dáða og gefur fleiri keppendum möguleika á að vinna verðlauna sem hluti af stærri hóp.
Undirbúningur mótsins gengur annars mjög vel og mun skráning hefjast 1. mars nk. á vefnum www.gustarar.is.


Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
2m6d9111.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf