Landsmót hestamannafélaga í Reykjavík 2012
föstudagur 05.mars 2010 - Lestrar 117
Hestamannafélagið Fákur og Landssamband hestamannafélaga undirrituðu í dag samstarfssamning um að Landsmót hestamanna árið 2012 verði
haldið á félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks í Reykjavík.
Landsmót eru haldin á tveggja ára fresti og verður landsmót haldið í Reykjavík dagana 24. júni til 1. júlí 2012 á 90 ára afmæli Hestamannafélagsins Fáks.
Landsmót draga að sér mikinn fjölda innlendra sem erlendra gesta og á síðasta Landsmóti voru um 14.000 gestir og 1.100 hross skráð til leiks svo það má búast við mikilli hátíð, því íslenski hesturinn skipar stóran sess í hjörtum margra. Ætla má að tíundi hver Íslendingur stundi hestamennsku með reglubundnum hætti og fimmti hver erlendur ferðamaður sem kemur til landsins fer á hestbak.
Hestamannafélagið Fákur og Landsmót ehf munu hefja undirbúning að mótinu á vordögum og stefna á að halda glæsilegt Landsmót fyrir hestamenn og gesti.