Gæðingadómarar athugið!
föstudagur 05.mars 2010
Gæðingadómarafélag LH minnir á upprifjunarnámskeiðið sem haldið verður þriðjudaginn 9.mars
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst stundvíslega kl.17:00. Seinna upprifjunarnámskeiðið verður haldið á Hólum
í Hjaltadal þriðjudaginn 30.mars kl.17:00. Kostnaður vegna upprifjunarnámskeiðsins og árgjald félagsins er samtals 8.000kr.
Allir skráðir félagar í GDLH fengu sendan til sín geisladisk til þess að dæma, skila átti niðurstöðum í síðasta lagi 1.mars. Allra síðasti séns til þess að skila inn niðurstöðum er kl.12 mánudaginn 8.mars en nauðsynlegt er að hafa skilað inn niðurstöðum til þess að taka þátt í upprifjunarnámskeiðinu.
Slóðin til að skila inn niðurstöðum er http://www.surveymonkey.com/s/gdlh