Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

Fréttir

Forsala aðgöngumiða hafin

Forsala aðgöngumiða fyrir fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum 2012 hófst nú um helgina. Mótið hefst klukkan 19:00 á fimmtudag og verður keppt í fjórgangi.

Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu hestum landsins verði skráðir til leiks.

Knapar voru við æfingar í Ölfushöllinni um helgina og sáust mikil tilþrif á gólfinu á meðan æfingar fóru fram. Má því gera ráð fyrir harðri baráttu á fimmtudaginn. Fyrstu upplýsingar um keppnishrossin eru byrjaðar að berast og hafa knapar fram að hádegi á morgun þriðjudag til að skila inn upplýsingum og má því gera ráð fyrir að ráslistar verði birtir seinni partinn á morgun.

Aðgangseyrir á mótið er krónur 1.500 og eru miðarnir til sölu í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi, Selfossi. Á sömu stöðum er einnig hægt að kaupa ársmiða á deildina en þeir kosta krónur 5.000 og með þeim fylgir DVD diskur frá Meistaradeildinni 2011.




Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
2m6d8026.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf