Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

Fréttir

Fjölskyldusýningin Æskan & hesturinn

Ungur knapi á sýningunni í fyrra. Ljósmynd: Hilda Karen Garðarsdóttir.
Ungur knapi á sýningunni í fyrra. Ljósmynd: Hilda Karen Garðarsdóttir.
Fjölskyldusýningin Æskan & hesturinn verður haldin í Reiðhöllinni í Víðidal um helgina, 13. og 14. mars. Tvær sýningar verða hvorn daginn, kl. 13:00 og kl. 16:00.

Sýningin er árlegur viðburður og er frábær skemmtun fyrir unga sem aldna. Hestakrakkar á öllum aldri sýna listir sýnar og skemmtiatriðin í ár sannarlega spennandi. Hinn hressi Ingó veðurguð syngur og skemmtir áhorfendum, Íþróttaálfurinn kemur og sprellar með krökkunum og Dansskóli Birnu Björns sýnir dansatriði.
 
Það eru að venju hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu sem standa að sýningunni, sem unnin er í sjálfboðavinnu með styrkjum frá góðum fyrirtækjum og félögum.
 
Láttu ekki sýninguna fram hjá þér fara.
 
FRÍTT INN MEÐAN HÚSRÚM LEYFIR!!


Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
2m6d1550.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf