Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

Fréttir

Fiskidagskappreiđar

Vegna eftirspurnar hefur mótanefnd Hrings ákveðið að bæta við 150m skeiði inn í áður auglýsta dagskrá Prómens Fiskidagskappreiða. Vonumst við til að sem flestir láti sjá sig.

Nú þegar eru skráningar farnar að detta í hús og því hækkar verðlaunapotturinn frá degi til dags. En eins og áður hefur komið fram rennur helmingur af skráningargjaldi hverrar greinar beint í verðlaunafé.

Nánar um mótið hér fyrir neðan.

Fimmtudaginn 5. ágúst kl 17:00 verða haldnar kappreiðar á Hringsholtsvelli í Svarfaðardal við Dalvík. Keppt verður í 100m skeiði fljúgandi start, 150m skeið, 250 m brokk, stökk og skeið úr startbásum. – Rafræn tímataka.

Vegleg peningaverðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverri grein, að auki fá sigurvegarar glæsilegan ferðakistil framleiddan af Prómens Dalvík.

Skráningarfrestur er til 1. ágúst kl 20:00 og fer fram í gegnum heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net.

Skráningargjald er kr 3000. á hest pr.grein. Þar af rennur 50% af skráningargjaldi í verðlaunafé sem gerir grunnpottinn enn stærri.
Skráningargjald greiðist inn á reikning félagsins fyrir kl. 20:00 þriðjudaginn 3.águst.
Kt. 540890-1029   Reikn.1177-26-175 – skýring:Nafn knapa
Kvittun sendist á hringurdalvik@hringurdalvik.net  

Mótshaldarar áskila sér rétt að fresta móti, verði þátttaka ekki næg.

Mótanefnd Hrings.



Styrktarađilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
2m6d7690.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf