Ályktanir vegna LM2012
mánudagur 15.mars 2010
Undirritaðir stjórnarmenn hestamannafélaganna Dreyra, Faxa, Geisla, Glæsis, Grana, Háfeta, Hornfirðings, Kóps, Léttfeta, Ljúfs, Loga,
Mána, Neista, Sindra, Skugga, Sleipnis, Smára, Snarfara, Snæfaxa, Stíganda, Storms, Svaða, Trausta, Þjálfa, Þráins og Þyts
mótmæla því harðlega að stjórn L.H. hrófli við því mynstri sem verið hefur við lýði varðandi staðsetningu
Landsmóta allt frá upphafi þeirra en það mynstur hefur byggst á því að mótin hafa verið haldin á landsbyggðinni og til
skiptis á norður- og suðurlandi.
Ef samið verður um að LM 2012 verði í Reykjavík er um stefnubreytingu að ræða í Landsmótsmálum. Krefjumst við þess
að áður en svo veigamikil stefnubreyting sé framkvæmd, verði greidd atkvæði um hana á ársþingi L.H , ellegar sé kallað til
auka fundar
Greinagerð:
Nánast frá upphafi landsmóta hafa þau verið staðsett á landsbyggðinni og til skiptis sunnan lands og norðan og því rík hefð komin á það fyrirkomulag. Í hugum okkar og trúlega margra annarra er sérstaða Landsmóta að hluta til fólgin í umgjörðinni sem víðáttan og dreifbýlið skapar. Sú tilraun sem gerð var árið 2000 þegar Landsmót fór fram í Reykjavík sýndi a.m.k, burt séð frá kostum þess og göllum, að þetta var mót af ólíkum toga. Frá árinu 2002 hefur staðsetning mótana verið í mjög föstum skorðum þar sem tveir Landsmótsstaðir hafa verið til skiptis, Gaddastaðaflatir og Vindheimamelar og er búið að leggja í miklar fjárfestingar á þessum stöðum á undanförnum árum til þess að geta sem best mætt kröfum Landsmótsgesta.
Í ljósi þess að stjórn L.H. hefur ákveðið að ganga til samninga um að LM
2012 verði í Reykjavík og um leið storkað því jafnvægi sem verið hefur við
lýði hljótum við sem forsvarsmenn í félögum inn vébanda Landsambandsins
að spyrja okkur hvort slík stefnubreyting samræmist vilja heildarinnar.
Það er lágmarkskrafa að grasrót samtakana fái að fjalla um slík mál með lýðræðislegum hætti og ólíðandi að naumur meirihluti stjórnar taki slíkar ákvarðanir án þess að hafa fyrir því skýran vilja félagsmanna.