Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

Fréttir

Allt fullt á Svellkaldar!

Þau 100 pláss sem í boði voru á ístöltsmótinu Svellkaldar konur ruku út á fyrsta degi og hefur skráningu nú verið lokað þar sem allt er orðið fullt og þó nokkur fjöldi á biðlista. Góð skráning er í alla flokka og hestakostur frábær.

Það stefnir í veislu á ísnum hjá stelpunum og rétt að hvetja hestamenn til að taka laugardaginn 13. mars frá og mæta í Skautahöllina til að bera dýrðina augum. Mótið hefst kl. 17:15 og miðasala mun fara fram á staðnum. Nánar auglýst þegar nær dregur.
Afskráningar og breytingar á skráningum, ef einhverjar eru, skal senda á netfangið skjoni@simnet.is eins fljótt og auðið er.


Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
2m6d9882_1.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf