WR mót á Íslandi 2016

Sigurbjörn og Flosi
Sigurbjörn og Flosi

Mótshaldarar þurfa að sækja um WR mót til LH og LH sækir um það til FEIF. Sækja þarf um WR mót fyrir 15. mars n.k. 

Mótshaldarar eru beðnir um að setja sig í samband við skrifstofu LH, hilda@lhhestar.is óski þeir eftir því að halda WR mót á þessu ári. Athugið að öll WR mót þurfa að uppfylla kröfur í FIPO, k. 11. 

Greiða þarf €80 fyrir hvern WR viðburð sem sótt er um fyrir 15. mars, en €160 fyrir viðburð sem sótt er um eftir þann tíma. Þar að auki tekur FEIF €0.50 fyrir hverja skráningu. LH sendir út reikninga í nóvember til þeirra félaga sem sækja um WR mót.