Uppskeruhátíð hestamanna 28.október

Uppskeruhátíð hestamanna verður haldin hátíðleg laugardagskvöldið 28. október á Hilton Reykjavik Nordica. Glæsilegur kvöldverður, skemmtun og hefðbundin dagskrá. 

Hátíðarmatseðillinn er þessi:

  • Forréttur: VOX skelfiskssúpa
  • Aðalréttur: Nautalund chimmichurri
  • Eftirréttur: Pistasíu hvít súkkulaði mousse með hnetukurli

Veislustjóri verður Atli Þór Albertsson leikari og hljómsveitin Albatross leikur fyrir dansi, með Sverri Bergmann í broddi fylkingar. 

Hápunktur kvöldsins er afhending verðlauna í hinum ýmsu flokkum hestaíþrótta- og ræktunar. 

Miðaverð: 11.800 kr.

Miðasala: meetings@icehotels.is

Athugið að Hilton Reykjavík Nordica býður gestum uppskeruhátíðarinnar sérstakt tilboð á gistingu í takmörkuðu magni, svo fyrstur kemur fyrstur fær! 

Tveggja manna herbergi í eina nótt kr. 19.900 án morgunverðar. Hægt er að bæta við aukanótt fyrir aðeins kr. 15.900. 

Tryggið ykkur bókun á tilboðsverði með því að senda tölvupóst á meetings@icehotels.is eða í síma 444-5029.  

LH og FHB