Sörli - rekstrarstjóri

Laus er til umsóknar staða rekstrarstjóra hjá hestmannafélaginu Sörla í Hafnarfirði. Um er að ræða 60% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega.

Helstu verkefni:
• Daglegur rekstur, fjáröflun og fjármálastjórn
• Samskipti við stjórn og félagsmenn
• Viðburða- og verkefnastjórn
• Þróun og uppbygging hestamannafélagsins Sörla
• Vefstjórn
• Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Tölvukunnátta
• Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
• Góðir samskiptahæfileikar

Nánari upplýsingar veitir formaður félagsins, Magnús Sigurjónsson á magnuss@blonduskoli.is og skal umsókn og ferilskrá sendast á sama netfang. 

Umsóknafrestur er til 15. september n.k.