Samningar um LM2020 undirritaðir

Á föstudaginn s.l. voru undirritaðir samningar vegna Landsmóts hestamanna 2020 á Rangárbökkum. Það eru öll hestamannafélög á Suðurlandi frá Lómagnúp að Hellisheiði sem standa að samningnum og fulltrúar allra mættu við undirskrift.

F.v. aftari röð Hafþór Þorvaldsson fulltrúi Ljúfs, Guðmundur Birkir Þorkelsson fulltrúi Trausta, Gísli Guðjónsson fulltrúi Sleipnis, Ingvar Hjálmarsson fulltrúi Smára, Katrín Stefánsdóttir fulltrúi Háfeta, Freydís Örlygsdóttir fulltrúi Loga, Ólafur Þórisson fulltrúi Geysis, Vilborg Smáradóttir fulltrúi Sindra, Kristín Ásgeirsdóttir fulltrúi Kóps, Egill Sigurðsson oddviti Ásahrepps  og Sólrún Helga Guðmundsdóttir vara-oddviti Rangárþings ytra. 

F.v. fremri röð Helga Ragna Pálsdóttir varaformaður Rangárbakka, Kristinn Guðnason formaður Rangárbakka, Lárus Ástmar Hannesson formaður LH, Jóna Dís Bragadóttir varaformaður LH og Gunnar Eiríksson stjórnarmaður Landsmóts ehf. 

Nánari upplýsingar veitir Kristinn Guðnason s: 847 1179 eða Lárus Ástmar Hannesson s: 898 0548.