Ráslisti Meistaradeildar - gæðingafimi

Keppt verður í gæðingafimi í Samskipahöllinni í Spretti á morgun en ráslistinn fyrir mótið er klár. Keppni hefst kl. 19:00 og er það Eyrún Ýr Pálsdóttir sem ríður á vaðið á Hafrúnu frá Ytra-Vallholti en þær Eyrún og Hafrún stóðu sig vel í fjórgangnum. Margir spennandi hestar eru skráðir til leiks en fjórir hestar af fimm sem voru í úrslitum síðast í þessari grein eru skráðir til leiks. Árni Björn Pálsson mætir með Skímu frá Kvistum en þau sigruðu greinina í fyrra með 8,31 í einkunn. Jakob Sigurðsson mætir með Gloríu frá Skúfslæk en þau voru í öðru sæti í fyrra. Ásmundur Ernir mætir á Speli frá Njarðvík en þeir voru í þriðja sæti og sigurvegarar fjórgangsins Elin Holst og Frami frá Ketisstöðum mæta en það eru eflaust margir spenntir að sjá hvernig þeim tekst til.

Margir nýir eru einnig skráðir til leiks Sigurður Óli Kristinsson er skráður með Hreyfil frá Vorsabæ en Hreyfill hefur vakið mikla athygli síðustu ár. Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði og Hans Þór Hilmarsson keppa fyrir hönd Ganghesta/Margrétarhofs. Gangmyllan stillir upp sama liði og í fjórgangnum en Freyja Amble keppir á Álfastjörnu frá Syðri-Gegnishólum og Bergur Jónsson á Kötlu frá Ketilsstöðum.

Eitt er víst að þetta verður hörku spennandi keppni. Hægt er að nálgast miða í verslunum Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi á Selfossi en einnig verður selt við innganginn. Síðast þegar mótið fór fram í Samskipahöllinni seldist fljótt upp í Top Reiter svo það er um að gera að næla sér snemma í miða. Húsið opnar 17:00 en boðið verður upp á veitingar fyrir og á meðan mótinu stendur. Um að gera að mæta í góðra vinahópi og fá sér gott að borða fyrir keppni. Einnig er hægt að horfa á mótið í beinni útsendingu á Stöð 2 sport eða inn á livesports.is. 

Hér fyrir neðan er ráslistinn:

Nr.

Knapi

Hestur

Móðir

Faðir

1

Eyrún Ýr Pálsdóttir

Hafrún frá Ytra-Vallholti

Gnótt frá Ytra-Vallholti

Arður frá Lundum 2

2

Lena Zilenski

Sprengihöll frá Lækjarbakka

Írafár frá Akureyri

Gustur frá Lækjarbakka

3

Sylvía Sigurbjörnsdóttir

Héðinn Skúli frá Oddhóli

Folda frá Lundi

Grunur frá Oddhóli

4

Guðmar Þór Pétursson

Brúney frá Grafarkoti

Surtsey frá Gröf Vatnsnesi

Grettir frá Grafarkoti

5

Sigurður Vignir Matthíasson

Arður frá Efri-Þverá

Hornafjarðar-Jörp frá Háfshjáleigu

Eldjárn frá Tjaldhólum

6

Sigurður Sigurðarson

Dreyri frá Hjaltastöðum

Ófeig frá Hjaltastöðum

Hugi frá Hafsteinsstöðum

7

Sigursteinn Sumarliðason

Háfeti frá Hákoti

Óðsbrá frá Hákoti

Hnokki frá Fellskoti

8

Árni Björn Pálsson

Skíma frá Kvistum

Skálm fra Berjanesi

Krákur frá Blesastöðum 1A

9

Guðmundur Björgvinsson

Straumur frá Feti

Smáey frá Feti

Þristur frá Feti

10

Bergur Jónsson

Katla frá Ketilssöðum

Ljónslöpp frá Ketilsstöðum

Gaumur frá Auðsholtshjáleigu

11

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir

Óskar frá Breiðstöðum

Fantasía frá Breiðstöðum

Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum

12

Jakob S. Sigurðsson

Gloría frá Skúfslæk

Tign frá Hvítárholti

Glymur frá Árgerði

13

Sigurbjörn Bárðarsson

Nagli frá Flagbjarnarholti

Surtsey frá Feti

Geisli frá Sælukoti

14

Ragnar Tómasson

Sleipnir frá Árnanesi

Skuld frá Árnanesi

Prestur frá Kirkjubæ

15

Kári Steinsson

Binný frá Björgum

Venus frá Björgum

Döggvi frá Ytri-Bægisa 1

16

Janus Halldór Eiríksson

Hlýri frá Hveragerði

Líf frá Hveragerði

Barði frá Laugarbökkum

17

Sigurður Óli Kristinsson

Hreyfill frá Vorsabæ

Kolbrún frá Vorsabæ 2

Dugur frá Þúfu í Landeyjum

18

Hanna Rún Ingibergsdóttir

Mörður frá Kirkjubæ

Lilja frá Kirkjubæ

Valtýr frá Kirkjubæ

19

Hans Þór Hilmarsson

Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði

Lukka frá Stóra-Vatnsskarði

Álfur frá Selfossi

20

Teitur Árnason

Jarl frá Jaðri

Glóð frá Feti

Stígandi frá Stóra-Hofi

21

Hinrik Bragason

Pistill frá Litlu-Brekku

Prinsessa frá Litla-Dunhaga 1

Moli frá Skriðu

22

Freyja Amble Gísladóttir

Álfastjarna frá Syðri-Gegnishólum

Álfadís frá Selfossi

Dugur frá Þúfu í Landeyjum

23

Ásmundur Ernir Snorrason

Spölur frá Njarðvík

Sæla frá Sigríðarstöðum

Rökkvi frá Hárlaugsstöðum

24

Elin Holst

Frami frá Ketilsstöðum

Framkvæmd frá Ketilsstöðum

Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum