Sýning ræktunarbúa - umsóknarfrestur rennur út 1. júní

Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á landsmótum hestamanna og á LM2016 á Hólum verður engin breyting þar á. Stefnt er á að tilhögun sýninga verði með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði bundin við 10 ræktunarbú. Ræktunarbúin eru á dagskrá mótsins föstudagskvöldið 1. júlí milli kl. 19:00 og mun áhorfendum verða boðið að velja bestu ræktunarbússýninguna með símakosningu.

Það ræktunarbú sem flest atkvæði hlýtur ávinnur sér þann heiður að koma fram á laugardagskvöldinu í skemmtidagskrá kvöldvöku. Sýningartími á hvert bú er 5 mínútur. Útfærsla sýningar er alfarið á ábyrgð forráðamanna. Fótaskoðun verður viðhöfð og gilda reglur gæðingakeppni þar um, auk þeirra viðmiðana um heilbrigði sem mótstjórn LM setur. Að lágmarki skulu 5 hross sýnd og þurfa þau að vera frá sama lögbýli, eða fædd meðlimum sömu fjölskyldu.

Þátttakendur velja tónlist sjálfir og hafa samráð við þul hvernig búið skuli kynnt. Ein síða í mótaskrá fylgir til kynningar á búinu og þeim hestum sem koma fram í sýningunni en forsvarsmenn búanna verða að skila inn sinni síðu/auglýsingu á prenthæfu pdf-skjali, fyrir 11. Júní 2016. Verði síðan ekki komin fyrir þann tíma mun hún ekki birtast í skránni. Að auki geta sýnendur nýtt risaskjá við völl meðan á sýningu stendur.

Ræktunarbúi ársins 2015 er boðin þátttaka sem og keppnishestabúi ársins 2015. Dregin verða svo 10 bú til þátttöku úr innsendum umsóknum. Skráningargjaldið er kr.170.000.

Þeir hrossaræktendur sem hafa áhuga á að koma fram með sinn hóp á Landsmóti 2016 eru beðnir að senda inn umsókn um slíkt og athugið að gefa upp nákvæmar upplýsingar um hvaða hross er stefnt með á sýninguna.
Umsóknarfrestur er til 1. júní og verður tilkynnt þann 5. júní hvaða ræktunarbú munu taka þátt.

Umsóknir skulu sendar á netfangið landsmot@landsmot.is.