Fyrra ísmóti LH hefur verið aflýst

Vegna lélegrar þátttöku á fyrra ísmóti LH „Ískaldir hestamenn“ erum við tilneydd til að aflýsa mótinu næstkomandi laugardag. Þeir sem þegar hafa skráð sig og greitt þátttökugjaldið munu fá endurgreitt á næstu dögum. Gott væri ef þeir aðilar myndu senda línu á johanna@landsmot.is með fullu nafni, kennitölu og bankanúmeri. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Svellkaldar konur eru hins vegar ennþá á dagskrá þann 21. mars enda mjög vinsælt mót sem fyllist fljótt. Skráningar fyrir það hefjast þriðjudaginn 10. Mars kl. 12:00 á hádegi. Skráningargjald er kr. 10.000 og rennur til styrktar landsliðinu okkar.

Kv. LH og landsliðsnefnd