Einstakt tækifæri – afrekshópur LH

Stjórn LH hefur í hyggju að setja á stofn afrekshóp ungra knapa. Tilgangur  verkefnissins er að búa unga knapa undir að takast á við stór verkefni á sviði hestamennskunnar bæði hér heima og á erlendum vettvangi. Stjórnandi hópsins verður Páll Bragi Hólmarsson liðstjóri ísl landsliðsins.

Fyrirkomulag uppbyggingarinnar er eftirfarandi:

  • 20. – 22. mars - Æfingadagar með reiðkennurum, dómurum og fyrirlesurum
  • Maí - þátttaka í móti og yfirferð yfir sýningar með dómurum. Reiðkennari stýrir.
  • Sept - okt æfingahelgi og uppskeruhátíð. Farið verður yfir keppnistímabilið og framhaldið metið.

Viðburðir á vegum verkefnisins verða þrír á árinu og er skyldumæting á þá alla.

Gjaldgengir í hópinn eru knapar á aldrinum 17-21 árs, þ.e. knapar á síðasta ári í unglingaflokki + ungmennaflokkur.

Kostnaður knapa er kr. 30.000 fyrir árið. Einstakt tækifæri fyrir unga knapa til að bæta sig og byggja upp keppnishestinn sinn á markvissan hátt.

Í umsókn skulu koma fram allar grunnupplýsingar um umsækjandann, sem og  lýsing á keppnisárangri undanfarin tvö keppnisár. Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2016 og skulu umsóknir berast á netfangið lh@lhhestar.is fyrir þann tíma.

Páll Bragi veitir nánari upplýsingar um hópinn, hann er með netfangið austurkot@simnet.is.

Stjórn LH