Áhugamannadeild Spretts 2018


Eftir frábæra mótaröð 2017 er undirbúningur hafinn fyrir fjórða keppnisár deildarinnar. Síðastliðin keppnisár hafa heppnast mjög vel og erum við Sprettarar gífurlega þakklát keppendum, áhorfendum, sjálfboðaliðum og styrktaraðilum sem hafa komið að uppbyggingu deildarinnar.
Mótaröðin 2018 verður með sama fyrirkomulagi og 2017 þ.e.a.s greinarnar verða áfram fimm á á fjórum keppniskvöldum.

Stjórn deildarinnar telur að það fyrirkomulag að keppa í tveimur greinum á einu kvöldi hafi heppnast vel og skapað mikla spennu í heildar stigakeppninni. Knapar deildarinnar stóðu sig mjög vel þrátt fyrir að meirihluti keppanda hafi t.d. verið að keppa í flugskeiði í fyrsta skipti.

Tólf af fimmtán liðum Áhugamannadeildar Spretts 2017 hafa áunnið sér keppnisrétt fyrir árið 2018. En það eru þrjú lið sem falla úr deildinni eftir keppnisárið 2017 skv. reglum deildarinnar og eru það lið Einhamar Seafood/Ísfell, Poulsen og Snaps/Optimar Kapp.

Þau lið sem unnið hafa sér keppnisrétt verða að staðfesta við forsvarsmenn deildarinnar áframhaldandi þátttöku fyrir 22 ágúst 2017 ásamt liðskipan. Hvert lið hefur fimm knapa.

Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 26 ágúst. Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn fimm knapa liðsins.

Dregið verður úr umsóknum Metamótshelginni okkar í Spretti .Tímasetning auglýst síðar.

Þau lið sem falla úr deildinni 2017 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um. Það eru þrjú sæti laus í Áhugamannadeild Spretts 2018..

Umsóknir sendist á maggiben@sprettarar.is eða linda@cargo.fo fyrir 26 ágúst n.k.

Við bendum á reglur Áhugamannadeildar Spretts – liður 7 - um hvaða knapar hafa keppnisrétt í deildinni.
7. Keppendur í Áhugamannadeildinni – inngangsskilyrði
7.1. Knapar sem hafa töluverða reynslu af keppni en deildin er ekki byrjendadeild.
7.2 Knapar sem ekki hafa keppt í meistaraflokki eða Meistaradeild seinustu 3 ár.
7.3 Knapar sem hafa ekki laun af tamningu eða þjálfun hesta þ.e.a.s. hafi hestamennsku sem aðal atvinnugrein
7.4. Lágmarksaldur keppenda í Áhugamannadeild er 22 ár.
7.5. Stjórn Áhugamannadeildar Spretts hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylla inngangskilyrði

Dagsetningar móta 2018 hafa verið ákveðnar – með fyrirvara um niðurröðun greina.
Mánudagur 5 febrúar – Knapafundur
Fimmtudagur 8 febrúar – Fjórgangur
Fimmtudagur 22 febrúar – Fimmgangur
Fimmtudagur 8 mars : Slaktaumatölt og flugskeið gegnum höllina
Fimmtudagur 22 mars : Tölt – lokamótið

Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Áhugamannadeild Spretts 2018.