Þann 11. mars 2013 kom út ný útgáfa af Kappa og GagnaKappa, útgáfa 1.9. Nauðsynlegt er að allir notendur uppfæri forritið hjá sér og séu ávallt með nýjust útgáfuna. Leiðbeiningar eru hér neðar. Ekki þarf að uppfæra InterBase þannig að þeir sem eru að uppfæra þurfa bara að setja Kappa/GagnaKappa upp að nýju. Ef hins vegar er verið að setja forritin upp á nýja tölvu þarf fyrst að setja upp Interbase og síðan Kappa og GagnaKappa. Nauðsynlegt er að fylgja leiðbeiningum nákvæmlega, sjá hér neðar.
Áríðandi athugasemd um stýrikerfi:
Það á alltaf að vera hægt að setja forritin upp á tölvur með Windows XP stýrikerfi en ef um nýrri stýrikerfi er að ræða (Windows Vista eða Windows 7) gildir að eingöngu er hægt að setja hugbúnaðinn upp á 32 bita stýrikerfi, en ekki á 64 bita. Til að sjá hvort stýrikerfið er 32 eða 64 bita er best að hægri smella á „My computer,“ eða „Computer“ og velja„Properties.“ Þá opnast gluggi þar sem m.a. stendur „System type: 32-bit Operating System“ eða „System type: 64-bit Operating System.“Tölvur sem eru með 64 bita stýrikerfi er því miður ekki hægt að nota til að keyra Kappa! Ekki hefur verið prófað að setja forritin upp á tölvu með Windows 8 stýrikerfi en líklegt er að það sama gildi þar.
Kappi 1.9 og GagnaKappi eru sóttir hér
Handbók Kappa og SportFengs er hér og einnig á forsIðu SportFengs
Slóðin á Sportfeng er: http://www.sportfengur.com/
