Flýtilyklar
3 fundur stjórnar 2008-2010 12.desember 2008
12. desember 2008
3. fundur
Haldinn í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, kl. 14:00
Aðalstjórn og
varastjórn voru boðaðar til þessa fundar.
Mættir voru: Haraldur Þórarinsson, Vilhjálmur Skúlason, Sigurður Ævarsson, Oddur
Hafsteinsson, Ísleifur Jónsson, Sigfús Helgason, Þorvarður Helgason og Sigrún Valdimarsdóttir, Sigrún Þórðardóttir og
Gunnar Sturluson. Auk nefndarmanna sátu Jóna Fanney Friðriksdóttir og Oddrún Ýr Sigurðardóttir fundinn. Aðrir nefndarmenn boðuðu
forföll.
1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar
Fundargerð síðasta fundar samþykkt með
leiðréttingum.
2. Worldfengur
Starfsnefnd sem svaraði bréfi til Bændasamtaka Íslands hefur fengið svör
frá Guðlaugi Antonssyni og Jón Baldri Lorange.
3. Ferðakostnaður stjórnar
Málinu vísað til JFF,MG, SV og SH. Nefndin skal skila tillögum til stjórnar fyrir
næsta fund.
4. Heimasíðumál LH
Óskaða eftir því að JFF komi að innleiðingu heimasíðu sambandsins.
5. Nefndir sem skipaðar voru á fundinum
Menntanefnd:
Aðalmenn: Oddrún Ýr Sigurðardóttir, Sigrún Valdimars, Þorvarður Helgason, Herdís
Varamenn: Arndís Brynjólfsdóttir og Þorvaldur Kristjánsson.
Kynbótanefnd: Útbúa þarf erindisbréf fyrir viðkomandi nefnd. Þorvaldur Kristjánsson hefur orðið við því að
aðstoða við uppsetningu á vinnuferli kynbótanefndar. Óskað eftir að stjórnarmenn komi með hugmyndir um fólk í nefndina.
6. Starfslýsingar nefnda
Lagðar voru fram starfslýsingar fyrir nefndir, þær verða sendar
áfram til viðkomandi nefnda til umfjöllunar, einnig verða senda eldri starfslýsingar til starfsnefnda til umfjöllunar.
Eftirfarandi starfslýsingar voru yfirfarnar eða gerðar nýjar: landsliðsnefnd, fjáröflunarnefnd, Úrvalshópur – U-21 nefnd.
7. Kostnaðaráætlun æskulýðsnefndar
Lögð var fram kostnaðaráætlun
frá æskulýðsnefnd vegna fundaferðar og hún samþykkt.
8. Önnur mál
a. Íþróttamaður /
Íþróttakona ársins
JF ásamt ÍJ, HÞ og VS voru skipuð til þess sjá um að kalla saman alla nefndarmenn og
þá aðila sem starfa fyrir FEIF til þess að vera viðstaddir krýningu íþróttamanns og íþróttakonu ársins, en
fundað verður um starfssemi FEIF áður þennan dag.
b. Uppskeruhátíð hestamanna
Regína Gunnarsdóttir, starfsmaður skrifstofu, mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir uppgjör Uppskeru hestamanna. Tekin var sú
ákvörðun að skipulag og framkvæmd uppskeruhátíðar verði enduskoðuð af framkvæmdarstjóra, formanni og varaformanni LH. Munu
þau koma með tillögur um framtíðarskipulag Uppskeruhátíðar hestamanna og kynna fyrir stjórn á 4. stjórnarfundi ársins
2009.
c. Umsóknir um landsmótsstaði
Lögð fram drög að auglýsingu um
„umsókn um landsmótsstaði“ og var hún samþykkt. Skrifstofu falið að koma henni á framfæri við fjölmiðla.
d. Aðalfundur Tamningarmanna
Boð um koma á aðalfund tamningarmanna, HÞ og JFF munu sjá um
að skipa aðila til þess að mæta.
e. Landsmót í Skagafirði
Haraldur fór yfir viðræður sem áttu sér
stað við landbúnaðarráðuneytið um næsta Landsmót og styrki tengda Landsmóti.
f. Samþykktir FEIF
Vinna er í gangi við að endurskoða samþykktir FEIF og hefur GS
umsjón með þeirri vinnu f.h. LH. Fór hann yfir helstu breytingartillögur sínar. Ákveðið að senda stjórn drögin á
tölvupósti.
g. Tillögur frá stjórnarmanni
Vilhjálmur Skúlason lagði fram sex tillögur til
umfjöllunar. Ein þeirra var dregin strax til baka.
a. Samstarf FEIF og LH
Vilhjálmur Skúlason lagði fram tillögu um breyttar forsendur Íslands um aðkomu að FEIF. Var
tillagan samþykkt og ákveðið að formaður hefji viðræður við BÍ.
b. LM ehf
Tillögu vísað til nánari úrvinnslu til JF, HÞ, GS. Skila skal aðgerðaráætlun til
stjórnar á næsta fund.
c. Samstarf um Worldfeng
Vísað til samnings sem er í gangi.
d. Hestatorg
Að kostnaðartölur verði birtar nú þegar og skýrsla um framgang verkefnis. Skýrsla og
uppgjör hafa þegar borist og verða til umræðu á næsta stjórnarfundi.
e. Landslið Íslands í hestaíþróttum
Stjórn óskaði eftir nánari kostnaðargreiningu um skiptingu
á milli íþróttahluta og kynbótahluta. Formanni landsliðsnefndar falið að taka saman nákvæma kostnaðarskiptingu á milli
landssliða.
Fleira ekki fært til bókar.
Fundarritari: Oddur Hafsteinsson
Styrktaraðilar
RSS fréttir
- hringurdalvik.net
KEA mótaröð 2012 - andvari.is
Fyrstu vetrarleikarnir - andvari.is
Æskan og hesturinn - andvari.is
Þakkir fyrir frábæra gjöf :) - andvari.is
Gjöf fyrir hestamenn um allt land! - svadafelagar.123.is
Ísmót á Ólafsfirði - andvari.is
Folaldasýning 4.febrúar - hordur.is
Reiðhöllin lokuð milli kl. 17-18 á fimmtudögum - svadafelagar.123.is
Gjöf fyrir hestamenn um allt land!!! - hordur.is
Aðalfundur Félags hesthúseigenda á Varmárbakka














