Flýtilyklar
2 fundur stjórnar 2008-2010 2.desember 2008
2. desember 2008
2 fundur.
Haldinn í Íþróttamiðstöðinni Laugardal.
Aðalstjórn og varastjórn voru boðaðar til þessa fundar. Mættir voru: Haraldur Þórarinsson, Vilhjálmur Skúlason, Sigurður
Ævarsson, Oddur Hafsteinsson, Ísleifur Jónsson, Maríanna Gunnarsdóttir, Sigfús Helgason, Þorvaður Helgason og Sigrún Valdimarsdóttir
aðrir boðuðu forföll.
1 Fundargerð síðasta stjórnarfundar
Fundargerð síðasta fundar samþykkt með
leiðréttingum.
2 Skipun nefnda
Aganefnd, samþykkt var
að breyta reglugerð í 3 varamenn. Þorvaldur Sigurðsson, Atli Már Ingólfsson og Sæþór Fannberg. Varamenn
Þórarinn Þórarinsson,
Kristín Þórðardóttir, Birna Baldursdóttir.
Dómaranefnd, ákveðið var að fresta skipun dómaranefndar þangað til starfslýsing væri endurskoðuð, ákveðið að
keppnisnefnd skili endurskoðari starfslýsingu fyrir dómaranefnd fyrir 31 janúar 2009.
Keppnisnefnd : Sigurður Ævarsson formaður, Ísleifur Jónasson, Ágúst Hafsteinsson, Halldór Svansson, Hulda Gústafsdóttir,
Þórir Örn Grétarsson og Freyja Hilmarsdóttir
Landsliðsnefnd, breyta skal reglugerð landsliðsnefndar og ásamt því að búa til reglugerð fyrir fjáröflunarnefnd. Skila skal
breytingartillögu fyrir næsta fund. HÞ, VS, JFF
Skipun landsliðsnefndar Bjarnleifur Bjarnleifsson formaður, Sigurður Sæmundsson, Sigurbjörn Bárðarson, Jón B. Olsen og fyrir hönd stjórnar
Maríanna Gunnarsdóttir.
Fjáröflunarnefnd, Jón Albert Sigurbjörnsson, Pétur J. Eiríksson, Sigurður Ragnarsson, Árni Guðmundsson og Óskar Eyjólfsson,
Davíð Ingason til vara.
HÞ, VSK og JFF munu skila starfslýsingu fyrir nefndina fyrir næsta stjórnarfund.
Mannvirkjanefnd, Endurskoða þarf reglugerð nefndar, Hinrik Bragason, Birgir Leó Ólafsson, Halldór Svansson, til vara Ásgeir Margeirsson.
HÞ, VSK og BLÓ munu skila starfslýsingu fyrir nefndina á næsta stjórnarfundi.
Reiðveganefnd, Halldór Halldórsson fyrir hönd LH og svo verða aðila skipaðir af reiðveganefndum félaganna.
Tölvunefnd Oddur Hafsteinsson Formaður, Þórður Ingólfsson, Ágúst Guðjónsson, Valdimar Snorrason, Kristín
Jónasdóttir, fyrir hönd gæðingadómarafélags Íslands Erla Guðný Gylfadóttir og íþróttadómarafélag
Íslands Þórir Örn Grétarsson. Vantar starfslýsingu fyrir viðkomandi nefnd OH mun skila fyrir næsta fund.
Æskulýðsnefnd : Helga B. Helgadóttir, Sigríður Birgisdóttir, Þorvarður Helgason, Sóley Margeirsdóttir, Andrea
Þorvaldsdóttir, Sigurvaldi R. Hafsteinsson.
Skipun annarra nefnda og milliþinganefnda frestað til næst fundar.
3. Árgjald Worldfeng
Jón Baldur kom og kynnti nýjan samning um Worldfengs og FEIF ásamt aðdraganda þess sem var af kröfu FEIF að Worldfengur
yrði opinn fyrir alla aðildarfélaga FEIF. Samningurinn var lagður fyrir stjórn LH. Sjá viðhengi Worldfengur proposal 2008.
Lagt er til að nefnd skipuð Gunnari Sturlusyni, Vilhjálmi Skúlasyni, Sigurður Ævarsson, Oddi Hafsteinssyni og Maríanna Gunnarsdóttir.
4. Niðurstöður lyfjaeftirlitsnefndar
Farið var yfir niðurstöður Lyfjaeftirlitsnefndar frá árinu 2008.
Niðurstöður voru allar neikvæðar og lýsir stjórn ánægju sinni með niðurstöðurnar. Stjórn lýsir samt furðu
sinni að hvorki þeim aðilum sem voru teknir í lyfjapróf, forráðamenn hesta eða mótshaldarar hafa ekki fengið nein viðbrögð
frá Lyfjaeftirlitsnefnd.
5. Þingskjal 11 a.
Samþykkt var að senda tillögur til FEIF byggt á þingskjali 11 a. Viðhengi Proposal From to change FIPO
rules.
6. Bréf til FEIF
Lagt var fram bréf sem senda á til FEIF vegna tillögu sem flutt var á sportnefndarfundi er varðar skipun dómara
á WR mót. Er þar þessari tillögu mótmælt og óskað eftir að gildistöku hennar verði frestað um eitt ár og
síðan verði lögð fram breytt tillaga á þeim tíma. Ef ekki verði farið að þessari beiðni verða engin WR haldin á
Íslandi á næsta ár.
7. Ferðakostnaður stjórnar
Frestað til næsta fundar.
8. Menntamál Hvanneyri
Oddrún Ýr starfsmaður LH. og Haraldur og Vilhjálmur munu fylgjast með framvindu þessa
máls.
9. Íþróttakona / íþróttamaður LH
Lögð voru fram gögn af starfsnefnd og tillögu að Huldu Gústafsdóttur sem íþróttakonu ársins og Árni Björn Pálsson
sem íþróttakarl árisins
Í framhaldinu er skipaður starfshópur sem skal skila viðmiðunarreglum til stjórnar um val á íþróttakonu og
Íþróttakarl LH. Í starfshópnum Ísleifur Jónasson, Sigrún Valdimarsdóttir og Sigfús Helgason. Nefndin skal skila tillögum
fyrir annan fund stjórnar 2009
10. Reglur um val á úrvalshópi í hestamennsku
Lagt var fram reglur um val á úrvalshópi í hestamennsku frá
starfshópi og voru þær samþykktar af stjórn, í hópnum voru Helga B. Helgadóttir, Bjarnleifur Bjarnleifsson og Anna Valdimarsdóttir
Viðhengi.
11. Uppskeruhátíð uppgjör.
Fjallað var um uppgjör en nánari umfjöllun frestað til næsta
fundar.
12. Skógahólar
Umræðum frestað til næsta stjórnarfundar.
13. Heimasíða LH
Ákveðið var að ganga að samningi við fyrirtækið Stefnu um smíði nýrrar heimasíðu.
14. Önnur mál
a) Skógarhólar
Skógarhólanefnd verður skipuð á
næsta fundi.
b) Hross í hollri vist
Erindi frá Hvanneyri verður vísað til mannvirkjanefndar.
c) Skýrslu um mótaröð
Umfjöllun frestað til næsta fundar
d) Hestamenn í Ólafsfirði,
Sigfús Helgason fór yfir málefni hestamanna í Ólafsfirði og samskipti við stjórnvöld og vegamálastjóra. Sigfús
Helgason er falið að halda áfram góðu starfi sínu fyrir hönd LH í málinu og lýsir stjórn fullum stuðningi við starf
Sigfúsar.
e) Vilhjálmur Skúlason
Lagði fram nokkrar tillögur fyrir stjórn til umhugsunar og verða ræddar á
næsta stjórnarfundi
a. Um skipulag samskipta við FEIF
b. Breytingar á stjórn Landsmót ehf.
c. Landslið hestamanna og kynbótalandslið Íslands.
d. Uppgjör hestatorgs
f) Lagt var fyrir bréf frá FEIF og umræðu frestað til næsta fundar.
Næsti fundur stjórnar ákveðinn 12.desember 2008.
Fleira ekki fært til bókar
Fundarritari: Oddur Hafsteinsson
Styrktaraðilar
RSS fréttir
- andvari.is
1. Vetrarleikar 2012 - svadafelagar.123.is
Skagfirska mótaröðin 2012 - svadafelagar.123.is
Yfirlýsing frá LH - andvari.is
Úrslit á ræktunardegi Hrossaræktarfélags Andvara 04.02.2012. - andvari.is
Heimsókn á Syðri-Gegnishóla - andvari.is
Fasteignagjöld - svadafelagar.123.is
Íslenski hesturinn og fólk með fötlun - andvari.is
Íslenski hesturinn og fólk með fötlun - sleipnir.is
1. Opna Vetramót Sleipnis. - hordur.is
Úrslit í Smalamóti Harðar 2012














