Landssamband hestamannafélaga

Landssamband hestamannafélaga

21. fundur 21.08.08

Stjórnarfundur LH 21. ágúst 2008.

 

21. fundur.


Stjórn og varastjórn voru boðuð til þessa fundar. Sigurður Ævarsson, Oddur Hafsteinsson, Sigfús Helgason, Maríanna Gunnarsdóttir, Vilhjálmur Skúlason, Haraldur Þórarinsson, Kjartan Hreinsson og Þorvarður Helgason.


Dagskrá:


  1. Fundur settur og umfjöllun um fundargerð síðasta fundar frestað þar sem hún lá ekki fyrir.

  2. Skipulagsmál: Vinnuplagg frá Bjarna S. Jónssyni lagt fyrir til umræðu. Hafði áður verið kynnt þeim sem komust á þann fund. Rætt betur á næsta fundi.

  3. Landsþing: Farið yfir helstu undirbúnings atriði fyrir landsþing frá hendi stjórnar sem eru.: Þingforsetar, hverja á að sæma gullmerki LH, hvaða gullmerkishafar hafa látist frá síðasta þingi, koma uppstillingarnefnd á stað, fara yfir tillögur og huga að tillögum frá stjórn og nefndum LH.

  4. Önnur mál:

  5. a) Afmælisrit LH.: Kári Arnórsson og Gísli B. Björnsson mæta á fundinn og kynna sínar hugmyndir um hvernig staðið skuli að ritun sögu LH og kostnaði við það. Talið nauðsynlegt að rita söguna frá upphafi þ.e. taka aftur fyrstu 35 árin sem ritað var um í “Morgunljómanum”, en fengist hefur leyfi til þess að nota þá bók til upplýsingaröflunnar. Þá var farið yfir kostnað og hvernig staðið skuli að sölu bókarinnar. Áætlaður kostnaður gæti legið á bilinu 5 til 6 milljónir við alla ritun og prentun. Ákveðið er, að fyrir næsta stjórnarfund verði lögð nánari kostnaðaráætlun þannig að stjórn geti tekið afstöðu til þess þáttar.

  6. b) Fara yfir þinggerðir og skýrslur sem átti að vinna frá síðasta þingi.

  7. c) Ræða við dómarafélög um hugsanlega sameiningu þeirra, en þau hafa bæði samþykkt að skoða þann möguleika. Oddur, Villi og Halli skoði málið fyrir næsta fund.

  8. d) Ákveðið að LH skoði með LM ehf. að halda fund um Landsmótið 2008 á Gaddstaðaflötum í sumar. Þar verði farið yfir alla þætti Landsmótsins.

  9. e) Erindi frá Guðna Árnasyni formanni Smára. Ákveðið að Haraldur og Halldór svari þessu.

  10. Fleira ekki gert og fundi slitið.

Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 05.02.2009

Styrktaraðilar

Auglýsingar

Eldgos
Heimsmeistaramót 2011
CASCO
Lyfjareglur
Lög og reglur LH
Fipo reglur 2011
2m6d0650.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf